Innlent

Eldsvoði á Akureyri: Vegfarandi vakti íbúanna

Mynd úr safni
Mynd úr safni
Eldur kom upp í íbúð við Eiðsvallagötu á Akureyri klukkan hálf átta í morgun. Vegfarandi tilkynnti um reykinn og náði sjálfur að vekja tvo af fjórum íbúum hússins áður en slökkvilið kom á vettvang.

Slökkviliðið sótti svo tvo síðustu íbúana. Þeir voru fluttir á slysadeild grunaðir um reykeitrun. Búið er að slökkva eldinn og verið er að reykræsta húsið. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×