Framkvæmdir Orkuveitunnar orsaka skjálftahrinu 13. september 2011 21:15 Mynd/Vilhelm
Tæplega þrjú hundruð skjálftar hafa mælst á Hellisheiði frá miðnætti. Mikil skjálftavirkni er ekkert til að hafa áhyggjur af, segir talsmaður Orkuveitunnar. „Við erum hér að dæla niður affallsvatni frá virkjuninni. Þegar við erum búin að nýta gufuna til að framleiða rafmagn og heitt vatn þá tökum við affallsvatnið og dælum því aftur niður í jarðhitageyminn. Það er þessi vatnsdæling sem að er að koma af stað þessari hrinu smá skjálfta sem að sjást á mælunum" segir Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur. Skjálftarnir hafa allir verið undir þremur á Richter. Eiríkur segir vinnumenn á svæðinu lítið sem ekkert hafa fundið fyrir þeim. Ástæða fyrir aukinni skjálftavirkni síðustu daga er að búið sé að finna sérstaklega stórar sprungur og þegar vatnið fer niður í þær virkar það eins og smurning þannig að sprungurnar hnikast til. „Við erum nýbúin að koma upp fimm nýjum skjálftamælum hér til að geta fylgst með því hvernig okkur gengur við að koma vatninu niður. Það er kannski ein ástæðan fyrir því að þetta mælist miklu betur heldur en áður,“ segir Eiríkur. Um 350-400 lítrar af vatni renna niður á hverri sekúndu af 70-80 gráðu heitu vatni í fjórar borholur og Eiríkur segir að enn eigi eftir að tengja eina holu í viðbót og því von á frekari titringi. „Við lítum svo á að þetta sé merki um það að okkur sé að takast að koma vatninu farsællega niður í jarðhitageyminn aftur og á meðan skjálftarnir eru ekki stærri er engin ástæða til að hafa áhyggjur," segir Eiríkur.
Mest lesið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Innlent Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Innlent Full ástæða til að vara foreldra við Innlent Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Innlent Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Innlent Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Erlent Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Innlent Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna jökulhlaups og Druslugangan Lýsa yfir óvissustigi og skipa fólki að yfirgefa svæðið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Áhyggjur af gasmengun vegna jökulhlaups Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Ferðamennirnir lausir úr haldi eftir líkamsárás Sala fíkniefna fyrir opnum tjöldum og stemmning á Húsavík Ný líkön sýna umfang hraunsins Allt í háaloft þegar faðirinn sneri til baka úr veikindaleyfi Óbreyttir bændur í Mýrdalnum hafi ekki efni á malbiki Ragnar Þór kennir Pawel eitt og annað í kennslufræðum Sjá meira