Erlent

Medvedev hreinsar til í lögreglunni eftir hryðjuverkaárás

Alls létust 35 í árásinni.
Alls létust 35 í árásinni.

Forseti Rússlands, Dimitry Medvedev, er búinn að reka helstu yfirmenn lögreglunnar í Moskvu vegna hryðjuverkaárásarinnar á fjölmennasta flugvelli borgarinnar fyrir helgi þar sem 35 létust og fjöldi manns slasaðist.

Aðgerðir forsetans koma í kjölfarið af fregnum um að lögreglan hafi vitað að árásin væri yfirvofandi. Lögreglan fékk meira að það segja ábendingar um hvar nákvæmlega árásin ætti að eiga sér stað. Rússar syrgðu hina látnu í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×