Tíska og hönnun

Arftaki Grace Kelly

Tilvonandi eiginkona Alberts prins II. af Mónakó hefur klassískt andlit og mörgum þykir hún minna á sjálfa Grace Kelly.
Tilvonandi eiginkona Alberts prins II. af Mónakó hefur klassískt andlit og mörgum þykir hún minna á sjálfa Grace Kelly.
Augu heimsbyggðarinnar eru á Ólympíusundstjörnunni Charlene Wittstock eftir að hún og Albert prins af Mónakó opinberuðu trúlofun sína síðasta sumar.

Haft er á orði að hún minni á móður prinsins, sjálfa Grace Kelly. Charlene Wittstock og Prins Albert II. hafa verið saman frá árinu 2006 og gerðu trúlofun sína opinbera á síðasta ári.

Mónakóbúar eru heldur spenntir því síðasta brúðkaup valdhafandi prins í furstadæminu var hið goðsagnakennda brúðkaup Grace Kelly og Prins Rainier III. árið 1956.

Charlene þykir hafa klassískan stíl eins og tengdamóðir hennar heitin og jafnvel gera í því síðustu árin að klæða sig og greiða í þeim stíl sem Grace Kelly var þekkt fyrir. -jma

Charlene Wittstock klæddist fallegri dragt í brúnum litatónum á þjóðhátíðardegi Mónakó, 19. nóvember. Í miðjunni er hún í síðkjól með eyrnalokka á Grace Kelly-legum nótum. Til hægri er mynd af parinu frá því í desember síðastliðnum, Wittstock í skósíðum svörtum kvöldkjól.











Fleiri fréttir

Sjá meira


×