Erlent

Hvarf í tvo daga og snéri aftur vanaður

Verðlaunakötturinn snéri aftur vanaður.
Verðlaunakötturinn snéri aftur vanaður.

Verðlaunaköttur af tegundinni Síamis-bengal cross hvarf af heimili sínu fyrir tveimur dögum í Wellington á Nýja Sjálandi.

Það er vart í frásögum færandi nema fyrir það að tveimur dögum síðar snéri verðlaunakötturinn aftur, en eiganda sínum til mikillar furðu, þá var búið að gelda dýrið.

Eigandinn er æfur vegna þessa enda hafði hann hugsað sér að selja læðum aðgang að honum. Eigandinn er í raun furðu lostinn enda spurði hann í Nýsjálenskum fjölmiðlum hver í ósköpunum stæli ketti til þess eins að gelda hann?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×