Erlent

Fimmta hver kona reykir á meðgöngu

45% barnshafandi kvenna undir tvítugu í Englandi og Wales reykja á meðan á meðgöngu stendur.
45% barnshafandi kvenna undir tvítugu í Englandi og Wales reykja á meðan á meðgöngu stendur. Mynd úr safni
Skaðsemi reykinga á meðgöngu hefur lengi verið kunnug en þrátt fyrir það sýnir ný könnun breskra vísindamanna að fimmta hver kona í Englandi og Wales reykir á meðgöngu sem eykur líkur að börn þeirra fæðist mikið fötluð. Þá reykja 45% kvenna undir tvítugu meðan á meðgöngu stendur.

Rannsóknin leiddi ennfremur í ljós að reyki móðir þegar hún er barnshafandi aukast líkur á barn hennar fæðist með hjartagalla, vanskapaða útlimi eða án útlima um allt 25%. Enn líklegra er að barnið fæðist með klofinn góm. Talið er að um 3700 börn fæðist með slíka galla á hverju ári í Englandi og Wales.

Heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að skera upp herör gegn reykingum kvenna á meðgöngu. Rannsóknin sýni að nauðsynlegt sé að ráðst í slíkar aðgerðir og fræða mæður um skaðsemi reykinga. Til mikils sé að vinna fyrir fjöldann allan af ófæddum börnum, auk þess sem kostnaður heilbrigðiskerfisins vegna reykinga mæðra sé mikill.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×