Erlent

Móðir og dætur hennar skotnar til bana

Mynd/AP
Móðir og þrjár dætur hennar fundust myrtar á heimili þeirra í úthverfi New Orleans í Bandaríkjunum í gær, en þær höfðu verið skotnar til bana. Yngsta dóttirin var sex mánaða gömul.

Það var fjölskyldufaðirinn sem tilkynnti um ódæðið en hann kom að líkum eiginkonu sinnar og dætra á efri hæð hússins eftir að hann kom heim úr vinnu. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn málsins en morðvopnið fannst á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×