Erlent

Simpansi gefur tígrisdýrum pela

Simpansi í taílenskum dýragarði hefur slegið í gegn eftir að hann hóf að gefa nokkra vikna gömlum tígrisdýrum að drekka úr pela. Þetta hefur simpansinn Dodo gert á degi hverjum í rúmt ár en þá voru tígrisdýrin á bilinu þriggja vikna til fimm mánaða gömul.

Jakkrit Jakrabatra, þjálfari Dodo, segir að hann hafi viljað ögra simpansanum með því að fela honum þetta verkefni. Þrátt fyrir að Dodo og tígrisdýrunum komi einkar vel saman kemur fyrir að simpansinn nennir einfaldlega ekki að gefa tígrisdýrunum að drekka. Að sögn Jakrabatra vill Dodo stundum bara leika sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×