Erlent

Sakfelldur fyrir raksápuárásina

Jonathan May-Bowles var sakfelldur fyrir raksápuárás, en refsing hans verður ákveðin eftir helgi.
Jonathan May-Bowles var sakfelldur fyrir raksápuárás, en refsing hans verður ákveðin eftir helgi. Mynd/AP
Breskur maður, sem réðst á fjölmiðlajöfurinn Rupert Murdoch með raksápu að vopni er Muroch var yfirheyrður af breskri þingnefnd, hefur verið sakfelldur fyrir árásina.

Hinn 26 ára gamli Jonathan May-Bowles, sem hefur reynt fyrir sér sem grínisti, játaði greiðlega að hafa smurt raksápu á disk og klínt henni á Murdoch.

Refsing hans verður ákveðin á þriðjudag. Yfirheyrslur yfir Murdoch voru sýndar í beinni útsendingu á helstu fréttastöðvum heims, og vakti árás May-Bowles því heimsathygli. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×