Erlent

Schwarzenegger skilinn við Maríu

Kvikmyndastjarnan og fyrrverandi ríkisstjóri Kalíforníu, Arnold Schwarzenegger, og eiginkona hans Maria Shriver, hafa ákveðið að skilja að borði og sæng. Arnold og Maria, sem tilheyrir Kennedy fjölskyldunni margfrægu, tilkynntu þetta í gærkvöldi.

Hjónin hafa gengið í gegnum miklar breytingar á síðustu mánuðum en Arnold hætti í embætti í janúar og er nú að íhuga endurkomu á hvíta tjaldið. Þau leggja mikla áherslu á að ákvörðunin sé tekin í mikilli vinsemd og ætla þau að hafa sameiginlegt forræði yfir börnum sínum fjórum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×