Erlent

Fundu yfir 500 laumufarþega í gámum í Mexíkó

Lögreglan í Mexíkó fann 513 laumufarþega í nokkrum gámum á tveimur tengivögnum tveggja vörubíla í gær.

Fólkið sem flest var frá Guatemala, Ekvador og El salvador var á leið til Bandaríkjanna og hafði borgað 7 þúsund dollara hvert fyrir að láta smygla sér þangað.

Lögreglan segist sjaldan hafa séð jafn ömurlegar aðstæður og þær sem voru í gámunum. Þar að auki hafði fólkið hvorki fengið vatn né mat í langan tíma. Fjórir voru handteknir vegna þessa máls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×