Danir gera tilkall til norðurpólsins 18. maí 2011 07:45 Rússneski fáninn á Norðurpólnum Danir ætla nú að feta í fótspor Rússa og gera formlegt tilkall til norðurpólsins.nordicphotos/AFP „
Konungsríkið býst við að gera tilkall til landgrunnsins á fimm svæðum umhverfis Grænland og Færeyjar, þar á meðal til sjálfs norðurpólsins,“ segir í drögum að sameiginlegri stefnu Danmerkur, Grænlands og Færeyja í norðurskautsmálum næstu tíu árin. Danska dagblaðið Information hefur birt drögin á vefsíðu sinni, en skjalið átti að vera trúnaðarmál. Danska stjórnin hefur staðfest að skjalið er ófalsað, en segir þetta vera vinnuskjal. Lene Espersen utanríkisráðherra segir að endanleg útfærsla stefnunnar verði ekki afgreidd fyrr en í júní. Þó staðfestir hún, í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í gær, að Danir reikni með að geta gert tilkall til norðurpólsins. Í skjalinu er jafnframt tekið fram, að danska stjórnin leggi áherslu á friðsamlegt samstarf við önnur ríki, sem gera tilkall til norðurpólsins, og víðtækt samstarf um málefni norðurskautsins. Hins vegar er einnig lagt til að danski herinn beini starfi sínu í auknum mæli að norðurslóðum. Rússar hafa á síðustu árum gert tilkall til norðurpólsins og vöktu mikla athygli þegar þeir sendu kafara til að setja upp rússneska fánann á hafsbotni á sjálfum norðurpólnum. Þeir voru jafnframt gagnrýndir fyrir það tiltæki, þótt einkum hafi það átt að hafa táknrænan tilgang. Auk Rússa hafa Kanadamenn, Bandaríkjamenn og Norðmenn gert tilkall til sjálfs norðurpólsins í krafti þess að hann sé beint úti af ströndum þeirra. Danir gera sitt tilkall í krafti þess að norðurpóllinn er beint norður af ströndum Grænlands. Mikilvægi norðurslóða hefur vaxið á síðustu árum, einkum vegna hlýnunar jarðar sem innan fárra áratuga mun að öllum líkindum valda því að siglingaleiðir yfir Norður-Íshafið verða greiðfærar hluta ársins. Talið er víst að miklar auðlindir leynist í landgrunninu víða á norðurslóðum, meðal annars sé þar að finna olíu og gas í ríkum mæli. Vinnsla þeirra auðlinda verður mun auðveldari þegar ísinn hörfar. Til þessa hefur ekkert ríki átt formlegt tilkall til norðurpólsins. Samkvæmt hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna hafa ríki tíu ára frest, eftir að þau staðfestu sáttmálann, til þess að gera tilkall til alþjóðlegs hafsvæðis áður en hægt verður að hefja eiginlegar samningaviðræður um skiptingu svæðisins. Danir staðfestu sáttmálann árið 2004. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Lögregla lýsir eftir Helga Innlent Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Erlent Fleiri fréttir Kennedy yngri losaði sig við bjarnarhúnshræ í Central Park Ræddu falsfréttir og samfélagsmiðla á neyðarfundi Segir af sér og flýr land Minnst níutíu mótmælendur drepnir í Bangladess Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Tók þátt í mótmælum þrátt fyrir hótun Maduro um handtöku Tugir hægriöfgamanna handteknir í óeirðum í Bretlandi Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Ósáttir við að vera vísað frá Rússlandi gegn vilja sínum Hætt við samkomulag við höfuðpaur hryðjuverkanna 11. september „Skrýtinn“ höggstaður á Trump sem snýr sér að kynþætti Harris Enn einar óeirðirnar í Bretlandi í kjölfar hnífaárásarinnar Handtekin nokkrum dögum eftir að hún sagði af sér Gangast loksins við leyniþjónustufólki eftir fangaskiptin Segir Kim telja að hægt sé að semja við Trump Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu 550 handteknir í tengslum við ólöglegan klámhring á Taívan Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Blinken segir González réttkjörinn forseta en Maduro situr sem fastast Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Segir setningarathöfnina traðka á mannlegri reisn Keppendur Ísrael fengu hótanir um endurtekningu á 1972 Umfangsmikil fangaskipti gætu verið á næsta leiti Nafngreina árásarmanninn til að stemma stigu við upplýsingafalsi Kom að hylla forsetann en endaði í kistu við fætur hans Segja hægt að koma í veg fyrir eða seinka um helmingi Alzheimers tilvika Sjá meira