Honda gæti snúið aftur í Formúluna Birgir Þór Harðarson skrifar 11. október 2012 06:00 Jenson Button vann einn kappakstur með Honda, í Ungverjalandi árið 2006. Nordicphotos/afp
Japanski bílaframleiðandinn Honda heldur möguleikanum á endurkomu í Formúlu 1 opnum. Honda hætti í Formúlu 1 í miðju hruninu árið 2008. Ári síðar urðu leifar Honda-liðsins að heimsmeistrum. Það má færa góð rök fyrir því að Honda hafi hætt ári of snemma því árangurinn sem hafði lengi látið á sér standa kom um leið og þeir drógu sig í hlé. Ástæðan fyrir brotthvarfi bílaframleiðandans var hins vegar að erfitt var að réttlæta miklar fjárfestingar þá. Nú er hins vegar bjartari tíð framundan hjá Honda. Það er stjórnarmaður Honda og framkvæmdastjóri þróunardeildar fyrirtækisins sem stígur fram og segir að þetta sé í kortunum. "Ég tala auðvitað ekki fyrir Honda heldur á persónulegum nótum þegar ég segi að ég elska mótorsport," segir Yoshiharu Yamamoto. "Það krefst mikilla skuldbindinga að taka þátt í Formúlu 1." "Honda byrjar ekki alveg strax aftur en það er möguleiki að þetta gerist í framtíðinni ef reglubreytingar í F1 henta okkur." Formúlan hagnast á aðkomu stóru framleiðandannaBernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, vill að öllum líkindum ólmur fá Honda aftur inn í Formúlu 1. Með stóru bílaframleiðendunum fylgir gríðarleg fjárfesting og mun meira ráðstöfunarfé en litlu liðin hafa á milli handanna. Á tímabili um miðjan síðasta áratuginn kepptu Honda, Toyota, BMW, Ferrari og Ford gegn rótgrónum liðum eins og Williams, McLaren, Minardi og Jordan. Stóru framleiðendurnir drógu sig hins vegar flestir í hlé þegar árangurinn lét á sér standa eða þegar efnahagskerfi heimsins hrundi á hausmánuðum 2008. Fleiri bílaframleiðendur hafa lýst áhuga á því að taka þátt í Formúlunni ef regluumhverfið breytist þeim til hagnaðar. Þær reglubreytingar sem Yamamoto talar um að sé forsenda þess að Honda taki þátt á ný eru að öllum líkindum minni vélar, rafvæðing mótoranna eða frekari möguleikar á þróun lífræns eldsneytis. Þetta eru næstu vígstöðvar þróunarstríðsins milli bílaframleiðanda heimsins og Formúla 1 gæti reynst mikilvægur vettvangur til þróunar á þessum búnaði. Ecclestone er hins vegar sagður efast um minnkun vélanna í nánustu framtíð. Ráðgert er að minnka þær árið 2014 og túrbó-drýfa þær en þær áætlanir gætu verið í hættu.
Formúla Mest lesið Sjáðu sigurmark Liverpool og pínleg mistök í München Fótbolti Bergrós efst Íslendinga eftir fyrstu viku CrossFit Open Sport Dómararnir á Spáni fá miklu betur borgað Fótbolti Draumadagar Elínar Klöru sem fer í atvinnumennsku Handbolti Utan vallar: Fegurðin í því að stúta og stela Fótbolti „Keflavík reyndi að kaupa sér Íslandsmeistaratitilinn en þeir eru í tíunda sæti“ Körfubolti Einstakt mál í Frakklandi: Níu mánaða bann fyrir að ógna dómara Fótbolti „Við vorum mikið betri en Liverpool“ Fótbolti Stelpurnar okkar aftur í hæstu hæðum Fótbolti Alisson: „Líklega besti leikur lífs míns“ Fótbolti Fleiri fréttir Lofaði Hamilton að ræða ekki við Verstappen Lewis Hamilton: Ég verð aldrei gamall maður Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu Eiginkona Michael Schumacher í áfalli Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“ Sjá meira