Formúla 1

Danica Patrick að skilja

Skötuhjúin er allt lék í lyndi.
Skötuhjúin er allt lék í lyndi.
Kappaksturskonan Danica Patrick er komin aftur á markaðinn en hún er að skilja við Paul Hospenthal eftir sjö ára hjónaband. Hún tilkynnti um skilnaðinn á Facebook.

"Það er með trega sem ég tilkynni að eftir sjö ára hjónaband höfum við Paul ákveðið að skilja. Þetta er ekki auðvelt fyrir okkur en við komumst að þessari ákvörðun saman," sagði í yfirlýsingunni.

Hospenthal er sjúkraþjálfari og kynntist hann Patrick er hún þurfti á aðstoð hans að halda. Hann er 17 árum eldri en Patrick sem er þrítug.

Patrick keppir í NASCAR-kappakstrinum í Bandaríkjunum og er einn þekktasti ökuþór heimsins. Hún hefur náð lengst kvenna í þessu mikla karlasporti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×