Menning

Straumvatn á striga

Sigtryggur Bjarni Baldvinsson myndlistarmaður opnar sýninguna Þrír staðir í Gallerí Ágúst á laugardaginn.

Á sýningunni eru ný málverk unnin upp úr þremur ljósmyndum teknum af vatni á ólíkum stöðum; við Font á Langanesi, Jökulsá á Fjöllum og hyl í smálæk á Barðaströnd. Þar hefur Sigtryggur myndað ólík vatnsyfirborð og reynt að fanga í málverkum sínum samspil náttúrunnar sem endurspeglast í hreyfingu vatnsins. Verkin eru unnin með olíu á striga og vatnslit á pappír.

Sigtryggur Bjarni Baldvinsson stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri, Myndlista- og handíðaskóla Íslands og École des Arts Decoratifs í Strasbourg, Frakklandi og hefur nú haldið á þriðja tug einkasýninga. Sigtryggur hefur unnið langmest með málverk og undanfarinn áratug einbeitt sér að verkum út frá vatnsflötum, sér í lagi straumvatni. Sigtryggur sat í safnráði Listasafns Íslands um þriggja ára skeið og í stjórn Myndlistaskólans í Reykjavík í meira en áratug og hefur kennt þar. Verk eftir Sigtrygg má finna í öllum helstu söfnum landsins og hjá fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×