Körfubolti

Marlow semur á ný við Snæfell

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd / Anton
Kieraah L. Marlow hefur samið ná ný við kvennalið Snæfells í Domino's deildinni út næstu leiktíð. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Marlow skoraði 21 stig að meðaltali í 32 leikjum með Snæfellis á síðustu leiktíð auk þess að taka tæplega tíu fráköst og eiga 3.5 stoðsendingar.

„Ég er mjög ánægður að hafa samið á ný við Kieraah. Hún spilaði vel fyrir okkur og ég er sannfærður um að hún eigi eftir að gera enn betur á næstu leiktíð. Hún þekkir betur umhverfið og við vitum hvað við erum að fá. Hún tekur pláss í litaða svæðinu og síðan var hún allan veturinn að bæta leik sinn," segir Ingi Þór Steinþórsson á heimasíðu Snæfells.

Kieraah er væntanleg til landsins í byrjun september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×