Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í Good Angels Kosice unnu þriggja stiga sigur á franska liðinu Arras Pays d'Artois í Euroleague í kvöld, 70-67 en leikurinn fór fram í Frakklandi.
Helena átti stórleik og var stigahæst hjá slóvakíska liðinu með 17 stig auk þess að taka 7 fráköst. Hún hefur aldrei skorað svona mikið í leik í Euroleague en gamla stigametið hennar voru 12 stig.
Helena byrjaði á bekknum en kom inn á eftir rúmar fjórar mínútur og var fljót að komast á blað. Hún skoraði 9 stig í fyrri hálfleik.
Helena skoraði síðan eina mikilvægustu körfu leiksins í lokin þegar hún setti niður þrist og kom Good Angels yfir í 66-65 þegar aðeins 70 sekúndur voru eftir.
Helena hitti úr 6 af 9 skotum sínum í leiknum þar af setti hún niður 3 af 4 þriggja stiga skotum sínum.
Good Angels Kosice hefur unnið 2 af fyrstu 3 leikjum sínum í Euroleague í vetur.
Helena stigahæst í sigurleik í Euroleague
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið


Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar
Íslenski boltinn

„Tilefnið stórt og sterkt að landa sigri“
Körfubolti


Asensio skaut Villa áfram
Enski boltinn


Albert kom við sögu í naumum sigri
Fótbolti

„Ákveðnir í því að gefa þeim enga von“
Körfubolti

Embiid frá út leiktíðina
Körfubolti

Fleiri fréttir
