Framkvæmdastjóra Lagastoðar haldið sofandi í öndunarvél 6. mars 2012 12:48 Frá skrifstofu Lagastoða í gærdag skömmu eftir árásina.
Líðan framkvæmdastjóra Lagastoðar, sem slasaðist lífshættulega í árásinni, er enn óbreytt. Hann gekkst undir umfangsmikla aðgerð í gær og er samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild haldið sofandi í öndunarvél. Árásarmaðurinn Guðgeir Guðmundsson er fæddur 1977 en hann reyndi ekki að hylja andlit sitt og virtist yfirvegaður þegar hann var leiddur inn í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun. Þar var fallist var á gæsluvarðhaldskröfu yfir honum fram á föstudag og honum gert að sæta geðrannsókn, en það tekur um sex til átta vikur að fá niðurstöður úr henni. Guðgeir, sem lýst er af þeim sem þekkja til hans sem rólegum og dagfarsprúðum manni, játaði verknaðinn fyrir dómara. Það virðist tilviljun ein að Guðgeir hafi ráðist á framkvæmdastjóra Lagastoðar, sem liggur nú þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans og er talinn í lífshættu. Guðgeir stakk framkvæmdastjórann margsinnis með hnífi og hlaut hann sár meðal annars á brjósti, hálsi og kviðarholi. Samstarfsmaður hans, Guðni Bergsson, hlaut einnig tvö stungusár á læri þegar hann kom félaga sínum til aðstoðar og yfirbugaði árásarmanninn. Hann fékk að fara heim í gær eftir að gert hafði verið að sárum hans. Ekki er ljóst hvað Guðgeiri gekk til með árásinni og samkvæmt Brynjari Níelssyni, einum eigenda Lagastoðar, virðast engin óvinveitt samskipti hafa átt sér stað á milli mannsins og stofunnar áður en til hnífaárásarinnar kom.
Mest lesið Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent „Í mínum huga alveg útilokað“ Innlent Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Innlent Stærðarinnar skilti sem ekkert má sýna Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Jarðgöng undir Miklubraut fýsilegri kostur Innlent Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Erlent Segja Ásgeir Helga hafa verið 20 mínútur í stæðinu Innlent Óhjákvæmilegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í Innlent Sveitastrákur mætir með byssuna sína á Ólympíuleikana Innlent Fleiri fréttir Leggja til íbúakosningu vegna framkvæmda Carbfix Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa „Í mínum huga alveg útilokað“ Sveitastrákur mætir með byssuna sína á Ólympíuleikana Stærðarinnar skilti sem ekkert má sýna Jarðgöng undir Miklubraut fýsilegri kostur Óhjákvæmilegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í Milljarðar streyma úr landi með starfsemi veðmálafyrirtækja Lagabreytingin vegi að eldri borgurum og öryrkjum erlendis Vestmannaeyjabær höfðar skaðabótamál á hendur Vinnslustöðinni Bóndi þvingaður til að afhenda hrút Segja Ásgeir Helga hafa verið 20 mínútur í stæðinu Segja Grindavík alls ekki ónýta og vilja hleypa fólki inn Fjórar ferðir vegna heilbrigðisþjónustu fást nú endurgreiddar Skemmdu bíla í reiðiskasti áður en þeir flúðu lögreglu á rafskútu Dýrmætu vasaúri og silfurfesti stolið af byggðasafni „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Rannsókn lokið á máli sem snýr að Polar Nanoq Fyrsta makrílfarmi vertíðarinnar landað í Neskaupstað Kári Garðarsson ráðinn framkvæmdastjóri Samtakanna 78 „Að láta taka sig ósmurt? Takk, en nei takk“ Albert neitaði sök Mikil tækifæri felist í að gera Þórsmörk að þjóðgarði Öldrun heimilislækna og fólksfjölgun valda læknaskorti Sjómenn „arfavitlausir“ og Lilja biður Stefán um frest Læknaskortur og sjávarháski Ætlaði með allt of ungt barn í ferð og heimtaði endurgreiðslu Ekki náttúruspjöll heldur forvarnir „Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“ Sjá meira