Lífið

Logi kom Brynhildi í bobba

Sjónvarpsmanninum Loga Bergmanni Eiðssyni finnst fátt skemmtilegra en að hrekkja vini sína og samstarfsmenn. Þegar Logi kemur í heimsókn vita þeir sem þekkja hann að öruggast er að slökkva á farsímum og tölvum á meðan hann er nálægur. Fáir hafa skrifað jafn marga Facebook-statusa um hægðartregðu eða heiftarlegan niðurgang í annarra nafni og Logi.

Nýjasti hrekkurinn er af dýrari gerðinni og tók heilt ár í undirbúningi þar til hann blómstraði nú í vikunni. Fórnarlambið var fyrrum samstarfskona Loga, Brynhildur Ólafsdóttir sem nýlega tók við sem framkvæmdastjóri Eddunnar, íslensku kvikmynda og sjónvarpsverðlaunanna. Logi komst í gsm-síma Brynhildar fyrir rúmu ári og fannst sniðugt að breyta númeri Egils Helgasonar sjónvarpsmanns og setja annað númer á bakvið nafnið hans í símaskrá Brynhildar.

Nú löngu síðar þegar Brynhildur var að undirbúa næstu Edduhátíð ákvað hún að senda Agli Helgasyni sms og bað hann að afhenda verðlaun á Eddunni. Ekki stóð á svarinu sem barst aðeins nokkrum sekúntum síðar. Eitthvað fannst Brynhildi Egill óeðlilega æstur í að fá þetta frábæra tækifæri. Síðar kom í ljós að Logi hafði sett símanúmerið hjá stórsöngvaranum Geir Ólafssyni á bakvið nafn Egils Helgasonar í símaskránna í gsm-síma Brynhildar.

Það verður spennandi að sjá hvort Brynhildur nær að leiðrétta þennan hressandi misskilning. Hvort það verður Geir Ólafsson eða Egill Helgason sem stígur á sviðið með verðlaunin veit enginn enn. Afhending Edduverðlaunanna fer fram í Gamla bíói 18. febrúar næstkomandi og verða í beinni útsendingu á Stöð 2.

Það er alltaf stutt í húmorinn hjá þeim Loga og Brynhildi og margir muna eftir hláturskastinu sem þau fengu í beinni fréttaútsendingu fyrir nokkrum árum. - Sjá youtube.com.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.