Formúla 1

Ecclestone: Formúla 1 keppir að nýju í Barein

Birgir Þór Harðarson skrifar
Krónprinsinn í Barein, Salman Al Khalifa, og Bernie eru góðir vinir.
Krónprinsinn í Barein, Salman Al Khalifa, og Bernie eru góðir vinir. nordicphotos/afp
Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, segir að mótaröðin muni snúa aftur til Barein þrátt fyrir gríðarlegt fjaðrafok í kringum mótið í ár og í fyrra.

"Mótið er alltaf að vaxa í Barein og fleiri lönd í Mið Austurlöndum eru áhugasöm um að fá að halda Formúlu 1-mót," sagði Bernie við breska dagblaðið The Telegraph.

Ákvörðun yfirmanna Formúlu 1 um að keppa í Barein á ný þrátt fyrir mótmæli og voðaverk í landinu var harðlega gagnrýnd í fjölmiðlum. Meðal þeirra sem blönduðu sér í umræðuna voru breskir þingmenn.

Ecclestone vill hins vegar meina að umfjöllunin hafi verið gerð pólitísk af fjölmiðlum í aðdraganda mótsins, en hann hafi aldrei litið á ákvörðunina sem pólitíska því beint hagsmunamat hafi ráðið för.

Bernie er samt alltaf léttur þó hann sé ákveðinn og orðinn hundgamall: "Þið vitið hvað þeir segja: Öll athygli er góð athygli. Við keppum aftur í Barein því þeir halda frábær mót."


Tengdar fréttir

Mótið í Barein á áætlun þrátt fyrir mikil mótmæli

Mótmælendur krefjast mannréttinda og vilja ekkert með Formúlu 1 hafa. Áhyggjur vaxa um að mótmælendur muni nota kappaksturinn til að koma rödd sinni á framfæri. Ecclestone hefur engar áhyggjur af öryggismálum fyrir mótið.

Kappakstur í skugga mótmæla og óeirða

Barein kappaksturinn fer fram um helgina eftir að talsverð óvissa hefur ríkt um hvort mótið verði eða ekki. Tvö ár eru liðin síðan keppt var í Barein síðast því kappakstrinum var aflýst í fyrra vegna gríðarlegra mótmæla í þar í landi.

Rosberg fljótastur og Force India dregur sig í hlé

Nico Rosberg, á Mercedes-bíl, var fljótastur á seinni æfingu keppisliða í Formúlu 1 sem nú fer fram í Barein. Lewis Hamilton á McLaren-bíl var fljótastur á fyrri æfingunni.

Gríðarlegir fjármunir í húfi verði mótinu í Barein aflýst

Umræðan um hvort Formúla 1 eigi að fara til Barein og keppa þar 22. apríl hefur magnast í aðdraganda kínverska kappakstursins um næstu helgi. Gríðarlegir fjármunir eru fólgnir í kappakstrinum bæði fyrir hagkerfið í Barein og fyrir auglýsendur og keppnislið í Formúlunni.

Verður mótinu í Barein á endanum aflýst?

Formúlu 1 kappaksturinn í Barein fer fram samkvæmt áætlun á sunnudaginn, fullyrðir Salman bin Hamad bin Isa Al Khalifa krónprinsinn í konungsríkinu Barein. Miklar umræður um hvort kappaksturinn eigi yfir höfuð að fara fram í löndum á barmi borgarastríðs hefur staðið í nokkrar vikur.

Mótmælendur mættu Formúlu-liðum er þau mættu til Barein

Þegar Formúlu 1-liðin lentu í Manama, höfuðborg Barein, í gærkvöldi mættu þeim hundruðir mótmælenda. Uppreisnarmenn eru mjög óánægðir með að Formúla 1 skuli halda mót í Barein í umboði stjórnvalda þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×