Körfubolti

Jón Arnór innsiglaði sigur Zaragoza - stighæstur í liðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson
Jón Arnór Stefánsson Mynd/Vilhelm
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza unnu 63-61 sigur á Gran Canaria 2014 í spænsku úrvaldeildinni í körfubolta í kvöld. Jón Arnór fór langt með að innsigla sigurinn þegar hann setti niður þrist og kom Zaragoza-liðinu í 63-59 á lokakafla leiksins.

Þetta var þriðji sigur CAI Zaragoza í röð og liðið er nú komið upp í 6. sæti deildarinnar með sjö sigra í þrettán leikjum.

Jón Arnór átti flottan leik í kvöld og var stigahæsti maður liðsins með 13 stig auk þess að gefa 3 stoðsendingar og stela 2 boltum. Jón Arnór hitti úr 3 af 6 þriggja stiga skotum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×