Körfubolti

Helgi Már góður í sigri 08 Stockholm

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helgi Már Magnússon.
Helgi Már Magnússon.
Helgi Már Magnússon átti fínan leik með 08 Stockholm í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag þegar liðið vann Borås Basket örugglega á heimavelli 95-75. Borås var í þriðja sæti deildarinnar og fimm sætum ofar fyrir leikinn í dag.

Helgi Már var frákastanæstur í sínu liði en hann var með 15 stig, 7 fráköst og 3 stoðsendingar á þeim 30 mínútum sem hann spilaði í leikinum. Helgi Már var einnig efstur í plús og mínus það er það gekk best þegar hann var inn á vellinum.

08 Stockholm HR komst upp fyrir Loga Gunnarsson og félaga í Solna Vikings með þessum sigri en 08-liðið er nú í 7. sæti deildarinnar með 11 sigra og 11 töp.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×