Körfubolti

Helena og félagar upp í 3. sætið í Meistaradeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Heimasíða Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í slóvakíska liðinu Good Angels Kosice eru komnar upp í 3. sæti í sínum riðli í Meistaradeildinni eftir níu stiga heimasigur á franska liðinu Lattes Montpellier, 70-61, í kvöld.

Good Angels Kosice mætir botnliði Frisco Brno í lokaumferðinni og er því nokkuð öruggt með sæti í sextán liða úrslitum keppninnar.

Helena lék í 15 mínútur í kvöld og var með 1 stig, 1 fráköst, 2 stoðsendingar og 1 stolinn bolta. Hún hitti ekki vel, klikkaði á báðum skotum sínum utan af velli og 3 af 4 vítum sínum.

Bandaríski leikmaðurinn Danielle Mc Cray var stigahæst með 24 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×