Lífið

Sindri orðinn pabbi

Sindri Sindrason sjónvarpsmaður er orðinn pabbi.
Sindri Sindrason sjónvarpsmaður er orðinn pabbi.
Sjónvarpsmaðurinn knái, Sindri Sindrason hefur lítið sést á skjánum síðustu vikurnar enda ný orðinn pabbi. Sindri og Albert maðurinn hans fengu litla stúlku í fóstur á dögunum og er nú hugur þeirra og hjarta í því að hugsa um litlu dótturina.

Sindri er mjög hamingjusamur heimavinnandi með litlu stelpunni sinni og brosir hringinn allan daginn við að annast hana. Það styttist þó í að Sindri snúi aftur á skjáinn því sú stutta hefur nú fengið pláss á Hjallaleikskólanum Laufásborg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×