Vinnur Njarðvík sjötta sigurinn í röð á Snæfelli? | Úrslitakeppni kvenna hefst í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2012 15:15 Shanae Baker-Brice fagnar með félögum sínum eftir bikarúrslitaleikinn. Mynd/Valli
Úrslitakeppni Iceland Express deild kvenna í körfubolta hefst í kvöld þegar undanúrslitaeinvígi Njarðvíkur og Snæfells fer af stað í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Það lið sem vinnur fyrr þrjá leiki tryggir sér sæti í úrslitaeinvíginu um íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.15 en liðið mætast síðan á sunnudaginn í Hólminum. Það er óhætt að segja að Njarðvíkurliðið sé með tak á Snæfelli því Njarðvík hefur unnið alla fimm leiki liðanna á þessu tímabili þar á meðal bikarúrslitaleikinn í febrúar þar sem kvennalið Njarðvíkur vann sinn fyrsta stóra titil. Njarðvík komst alla leið í úrslitaeinvígið í fyrra þar sem liðið tapaði fyrir Keflavík 3-0. Snæfellskonur hafa verið með í úrslitakeppninni undanfarin tvö ár en eiga enn eftir að vinna sinn fyrsta leik í úrslitakeppni. Snæfellsliðið hefur ráðið illa við hana eldfljótu Shanae Baker-Brice sem skoraði 30,7 stig að meðaltali á móti þeim í deildinni og var ennfremur kosin besti leikmaðurinn í bikarúrslitaleiknum þar sem Baker-Brice var með 35 stig, 16 fráköst, 9 stoðsendingar og 5 stolna bolta. Baker-Brice var samt ekki með í síðasta leik vegna meiðsla en samt sem áður vann Njarðvík hann með fimm stigum, 97-92. Lele Hardy tók upp hanskann fyrir löndu sína og var með 49 stig, 21 frákast og 8 stoðsendingar í þeim leik.Leikir Njarðvíkur og Snæfells í vetur: 5. nóvember í Njarðvík - Njarðvík vann 90-80 6. desember í Stykkishólmi - Njarðvík vann 72-69 28. janúar í Stykkishólmi - Njarðvík vann 84-60 18. febrúar í Laugardalshöll (bikarúrslit) - Njarðvík vann 84-77 7. mars í Njarðvík - Njarðvík vann 97-92
Dominos-deild kvenna Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira