Innlent

Ákall til Alþingis um Dýrafjarðargöng

Kristján Már Unnarsson skrifar
Vestfirðingar safna nú undirskriftum undir ákall til stjórnvalda um að Dýrafjarðargöng fái forgang og fram fyrir Vaðlaheiðargöng og Norðfjarðargöng. Bíll komst yfir Hrafnseyrarheiði í dag í fyrsta sinn í fjóra mánuði.

Ákall um Dýrafjarðargöng er yfirskriftin sem lýsir vel hve heitt samgöngumálin brenna á Vestfirðingum. Hörður Sigtryggsson, skipasmiður á Þingeyri, beitti sér fyrir söfnun undirskriftanna en þar er skorað á stjórnvöld að hraða Dýrafjarðargöngum og að þau verði næsta jarðgangaframkvæmd.

Vestfjarðavegur, megintenging vestfirsku byggðanna, hefur meira og minna verið lokaður í allan vetur vegna ófærðar á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði en göngunum er ætlað að leysa af Hrafnseyrarheiði og stytta leiðina um 27 kílómetra.

Áformað var að moka heiðarnar í síðasta mánuði en hætt var við það vegna mikils fannfergis og það var fyrst í gær sem Vegagerðin treysti sér til að hefja snjómokstur þar af fullum krafti. Um þrjúleytið í dag var verkið það langt komið að jeppi komst yfir Hrafnseyrarheiðina, sá fyrsti sem kemst í gegn frá því um miðjan desember. Mikill klaki er þó á veginum sem brjóta þarf af og mokstri á Dynjandisheiði er ólokið en Sigurður Mar Óskarsson hjá Vegagerðinni á Ísafirði vonast til að báðar heiðarnar verði orðnar færar síðdegis á morgun.

Formaður bæjarráðs Ísafjarðar, Eiríkur Finnur Greipsson, lýsti nýlega í viðtali á Stöð 2 þeirri framtíðarsýn sem birtist í samgönguáætlun sem ömurlegri.

"Það er bara verið að svíkja áður útgefin loforð. Og það þarf ekkert að skýla sér á bak við að hér hafi orðið efnahagslegt hrun," sagði Eiríkur Finnur. Þetta væri ekki bjóðandi nútíma samfélagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×