Lilleström vill halda Birni Bergmann til 13. júlí - búnir að semja við Wolves Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júní 2012 21:38 Björn Bergmann Sigurðarson. Mynd/Vilhelm
Lilleström tilkynnti það á heimasíðu sinni í kvöld að félagið væri búið að taka tilboði Úlfanna í íslenska landsliðsframherjann Björn Bergmann Sigurðarson. Björn Bergmann á þó enn eftir að ganga frá samningi við enska félagið. „Við höfum eins og flestir vita fengið tilboð frá Wolverhampton í Sigurðarson. Eftir viðræður um helgina höfðum við samþykkt þetta tilboð," sagði Torgeir Bjarmann, íþróttastjóri Lilleström í viðtali á heimasíðu félagsins. „Það hefur verið mikið rætt hversu lengi hann verður í Lilleström. Við viljum halda honum eins lengi og mögulegt er því við höfum lítinn tíma til að vinna upp slakan árangur í fyrri umferð. Þangað til hann verður leikmaður Úlfanna þá mun hann gefa allt fyrir okkar lið," sagði Bjarmann. Lilleström vill halda Birni Bergmann til 13. júlí þannig að hann spili sinn síðasta leik með félaginu á móti Tromsö. Samkvæmt því á Björn Bergmann eftir að spila þrjá leiki fyrir Lilleström áður en hann fer til Englands. Björn Bergmann hefur skorað 7 mörk í 11 deildarleikjum og 11 mörk í 13 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili en í fyrrasumar skoraði hann 5 mörk í 20 deildarleikjum. Wolves féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor og mun því spila í ensku b-deildinni á næstu leiktíð. Með liðinu spilar íslenski landsliðsmiðjumaðurinn Eggert Gunnþór Jónsson.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Fótbolti Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Fótbolti Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka Enski boltinn Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Fótbolti Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Sjá meira