Herferð Greenpeace gæti beinst gegn Drekasvæðinu Kristján Már Unnarsson skrifar 22. júní 2012 13:30 Drekasvæðið er allt norðan heimskautsbaugs og telst til Norðurslóða.
Alþjóðleg barátta Greenpeace gegn olíuleit á Norðurslóðum gæti beinst gegn áformum Íslendinga á Drekasvæðinu. Í frétt á Vísi í gær kom fram að Bítillinn Paul McCartney er í hópi heimsfrægra stjarna sem ætla að styðja herferð Grænfriðunga. Svæðið sem íslensk stjórnvöld hafa boðið út á Jan Mayen-hryggnum til olíuleitar og vinnslu er allt norðan heimsskautsbaugs og telst því hluti af Norðurslóðum, eins og þær eru almennt skilgreindar. Heimsskautsbaugur liggur nú í kringum 66,3 gráður norðlægrar breiddar en Drekasvæðið er allt norðan 67. breiddargráðu. Barátta Greenpeace gegn olíuleit á Norðurslóðum takmarkast þó ekki við heimsskautsbauginn og er skemmst að minnast þess að samtökin sendu skip í fyrra til vesturstrandar Grænlands til að hindra olíuboranir skoska olíufélagsins Cairn. Þær fóru fram á 64. breiddargráðu, á hafsvæði norðvestur af Nuuk, en Reykjavík liggur á sömu breiddargráðu. Grænlendingar sökuðu Greenpeace þá um tvískinnungshátt og sögðu að samtökin hefðu ekkert aðhafst vegna olíuborana Norðmanna í Barentshafi. Norsku umhverfissamtökin Bellona hafa þegar lýst yfir andstöðu við olíuleit við Jan Mayen. Þegar norsk stjórnvöld tilkynntu um áform sín þar fyrir þremur árum sagði talsmaður Bellona þau vera hneyksli og boðaði alþjóðlega baráttu gegn olíuvinnslu þar. Hérlendis hafa einnig birst efasemdir um olíuleit á Drekasvæðinu. Þannig hefur landsfundur Vinstri grænna ályktað um að Ísland eigi að beita sér fyrir friðlýsingu Norðurheimsskautssvæðisins. Hjörleifur Guttormsson, helsti hugmyndafræðingur flokksins í umhverfismálum, túlkaði þá samþykkt fyrir þremur árum svo hún tæki einnig til Drekasvæðisins. Þingmenn Vinstri grænna hafa hins vegar í atkvæðagreiðslum á þessu kjörtímabili vegna þingmála til undirbúnings olíuvinnslu þar sýnt í verki að þeir leggjast ekki gegn þeim áformum.
Tengdar fréttir Bítill vill að Norðurheimskautið sé látið í friði Grænfriðungar eru að hefja herferð til að fá Norðurheimskautið friðlýst af Sameinuðu Þjóðunum. Stefnt er að því að safna milljón undirskriftum undir yfirlýsingu þar sem farið er fram á að olíurannsóknum og ósjálfbærum fiskveiðum verði hætt. 21. júní 2012 17:17 Samþykktu að vinna að friðlýsingu Drekasvæðis og norðurslóða Hjörleifur Guttormsson, helsti hugmyndafræðingur Vinstri grænna í umhverfismálum, segir að íslensk stjórnvöld eigi að beita sér mjög ákveðið á alþjóðavettvangi fyrir friðlýsingu Drekasvæðis og norðurslóða gagnvart allri olíuvinnslu. 29. apríl 2009 19:45 Mest lesið Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Viðskipti innlent Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Spá aukinni verðbólgu Viðskipti innlent Kauphallir rétta úr kútnum Viðskipti erlent Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Viðskipti innlent Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Viðskipti innlent Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Viðskipti innlent Penninn leggst í miklar breytingar Viðskipti innlent Evrópusambandið frestar tollahækkunum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Hækkanir í Kauphöllinni á ný Nýr fríverslunarsamningur við Úkraínu samþykktur Greiðslur og rafræn skilríki komin í samt lag Sjá meira
Bítill vill að Norðurheimskautið sé látið í friði Grænfriðungar eru að hefja herferð til að fá Norðurheimskautið friðlýst af Sameinuðu Þjóðunum. Stefnt er að því að safna milljón undirskriftum undir yfirlýsingu þar sem farið er fram á að olíurannsóknum og ósjálfbærum fiskveiðum verði hætt. 21. júní 2012 17:17
Samþykktu að vinna að friðlýsingu Drekasvæðis og norðurslóða Hjörleifur Guttormsson, helsti hugmyndafræðingur Vinstri grænna í umhverfismálum, segir að íslensk stjórnvöld eigi að beita sér mjög ákveðið á alþjóðavettvangi fyrir friðlýsingu Drekasvæðis og norðurslóða gagnvart allri olíuvinnslu. 29. apríl 2009 19:45