Ævar Petersen dýrafræðingur segir hvítabirni friðaða og telur það lögbrot að skjóta alla birni sem koma til Íslands. Þetta kom fram í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í fyrravor en þar sagði Ævar að Ísland væri hluti af eðlilegu lífsmunstri hvítabjarna. Það væri því röng stefna að drepa þá.
„Þeir eru friðaðir. Það er alger undantekning ef á að fella þá. Þannig að það má ekki vera hin almenna regla að fella hvern einasta hvítabjörn sem kemur hingað. Ef það er niðurstaða stjórnvalda, þá verður að breyta lögunum," sagði Ævar í viðtalinu í fyrra.
Hann viðurkenndi þó hættuna. Hvítabirnir væru hættuleg dýr sem gætu drepið mann í einu höggi. Það réttlætti þó ekki að hvert einasta dýr væri skotið.
„Ég held að það eigi frekar að svæfa þau. Það er einfalt mál," sagði Ævar og lagði til að dýrin yrðu sett í Húsadýragarðinn, send til Grænlands eða þeim sleppt með gervihnattasendi til að kanna hvort þau sneru aftur til Grænlands. Ef þau væru of veik mætti svæfa þau fyrir fullt.
„Ég held að mörg þessara dýra, ef þau eru í góðu ástandi, muni fara aftur heim," segir Ævar.
Hann sagði að birnir sem hingað kæmu væru eðlilegur hluti af stofninum og telja mætti Ísland sem hluta af búsvæðum ísbjarna.
„Við erum á ystu mörkum, reyndar," sagði Ævar og benti á að vitað væri um 600 birni að minnsta kosti sem komið hefðu til Íslands í gegnum aldirnar. Komur bjarndýra til Íslands yrðu því að teljast eðlilegar.
„Það er ekki eitthvað sem er algjör undantekning. Það er hluti af þessu eðlilega lífsmunstri hvítabjarna," segir Ævar.
