Tónlist

Fjórða myndband Sigur Rósar kom í dag

BBI skrifar
Úr myndbandinu.
Úr myndbandinu.
Fjórða myndbandið í tilraun Sigur Rósar, The Valtari mystery film experiment, kom út í dag. Myndbandið gera leikstjórarnir Arni & Kinski sem eru kunnir af fyrra samstarfi sínu við Sigur Rós, en þeir leikstýrðu m.a. myndböndum við lögin Glósóli og Viðrar vel til loftárása.

Meginstef myndbandsins er hugleiðsla en leikstjórarnir segja að tónlist Sigur Rósar hafi hjálpað þeim í hugleiðslu gegnum tíðina. Tónlistin hjálpi fólki að finna styrk í ást.

Verkefni Sigur Rósar, The Valtari mystery film experiment, felst í því að tilteknir leikstjórar og kvikmyndagerðamenn fá ákveðna peningaupphæð og eiga í kjölfarið að velja sér lag af nýju plötu Sigur Rósar, Valtari, og gera við það myndband. Hljómsveitin fær ekkert um það að segja hvernig myndböndin verða. Þau hafa verið að birtast með tveggja vikna fresti síðustu vikur.

Verkefnið hefur vakið töluverða athygli og meðal annars birtist umfjöllun um þriðja myndbandið í öllum helstu miðlum heimsins. Þar kom frægur Hollywood-leikari, Shia LaBeouf, nakinn fram með þeim afleiðingum að mikið stormviðri hófst á helstu athugasemdakerfum heims. Síðan youtube meinaði börnum aðgang að myndbandinu sem vakti heilt á litið mikið umtal. Leikstjórinn Alma Har'el gerði það myndband.

Hér má sjá þau myndband sem þegar hafa komið út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.