Körfubolti

Griffin missir líklega af ÓL

Bandaríska landsliðið í körfubolta hefur orðið fyrir áfalli því framherjinn Blake Griffin er meiddur á hné og mun líklega ekki taka þátt á Ólympíuleikunum.

Griffin meiddist á æfingu á miðvikudag og er talið ansi líklegt að hann þurfi að gangast undir aðgerð vegna meiðslanna. Hann ætti þó að vera klár í slaginn í október.

Griffin er nýbúinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við LA Clippers. Sá samningur mun færa honum litlar 95 milljónir dollara.

Anthony Davis, sem var valinn fyrstur í nýliðavali NBA í sumar, mun væntanlega taka stöðu Griffin í liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×