Viðskipti innlent

Eggert hættir sem forstjóri HB Granda

Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda hf., hefur ákveðið að láta af störfum hjá HB Granda hf.

Eggert var markaðsstjóri félagsins frá júlí 2004 til febrúar 2005 og hefur frá þeim tíma starfað sem forstjóri þess. Eggert lætur af störfum þann 31. júlí 2012.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þar segir einnig að HB Grandi hf. þakkar Eggerti fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og óskar honum alls hins besta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×