Enski boltinn

Roma lagði Liverpool í Boston

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ítalska liðið AS Roma lagði Liverpool að velli 2-1 í æfingaleik félaganna á Fenway Park í Boston í nótt.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Bandaríkjamaðurinn Michael Bradley Roma yfir. Alessandro Florenzi bætti við öðru marki áður en Charlie Adam minnkaði muninn með fallegu skoti.

Þetta var annar æfingaleikur Liverpool en liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Toronto á dögunum. Liðið mætir Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Tottenham á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×