Körfubolti

LeBron ræður vin sinn sem umboðsmann

Félagarnir James og Paul eru hér á galeiðunni.
Félagarnir James og Paul eru hér á galeiðunni.
LeBron James hefur ákveðið að breyta til og fá sér nýjan umboðsmann. Lýkur þar með löngu samstarfi hans og Leon Rose sem hefur verið umboðsmaður hans síðustu ár.

Skilnaðurinn er ekki í vondu en nýi umbinn hans, Rich Paul, hefur unnið undir Rose undanfarin ár og slegið í gegn. James og Paul eru aftur á móti mjög nánir vinir.

Paul er að stofna nýtt umboðsmannafyrirtæki og það skemmir örugglega ekki fyrir að vera með James á sínum snærum.

James hefur verið að endurskipuleggja viðskipti sín undanfarið og verið að fjárfesta í nýjum hlutum eins og Liverpool.

James og Paul hafa verið vinir síðan Paul var táningur og samband þeirra er sagt vera mjög náið og Paul einn af hans helstu trúnaðarvinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×