Þýsku landsliðsmennirnir fá þrjár milljónir fyrir hvern leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. október 2012 15:00 Mesut Ozil. Mynd/Nordic Photos/Getty
Leikmenn þýska landsliðsins í knattspyrnu spila fyrir meira en þjóðarstoltið þegar þeir keppast við að tryggja þýska landsliðinu sæti á HM 2014 í Brasilíu. Þýska knattspyrnusambandið gaf það út í dag að hver leikmaður muni fá 20 þúsund evrur fyrir hvern leik í undankeppninni. 20 þúsund evrur eru rúmlega þrjár milljónir íslenskra króna og leikirnir í undankeppninni eru tíu talsins þannig að leikmaður gæti fengið meira en 30 milljónir í vasann spili hann alla leikina. Það fylgir reyndar sögunni að leikmennirnir fá ekki þennan pening nema ef að þýska liðið komist upp úr sínum riðli. Þjóverjar eru í riðli með Svíum, Írum, Austurríkismönnum, Kasökum og Færeyingum. Þjóðverjar unnu tvo fyrstu leiki sína með markatölunni 5-1 en framundan eru leikir á móti Írum og Svíum sem unnu bæði fyrsta leik sinn í undankeppninni. Þýsku leikmennirnir fengu sömu upphæð fyrir undankeppni HM 2010 en allir leikmenn fá það sama fyrir hvern leik hvað sem þeir gera inn á vellinum.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Þýski boltinn Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Luke Littler grét eftir leik Sport Fleiri fréttir Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Sjá meira