Tónlist

Stuðmenn fá fullt hús stiga

MYNDIR/DANÍEL
Það ríkti mikil gleði í Hörpu á föstudags- og laugardagskvöld þegar Stuðmenn fögnuðu þrjátíu ára afmæli myndarinnar Með allt á hreinu og það var vægast sagt áberandi á samskiptasíðunni Facebook um helgina að fólk var almennt ánægt með tónleikana. Friðrik Ómar, Ólafur Páll og Selma Björns lifa og hrærast í tónlistarbransanum - þetta var það sem þau sögðu um Stuðmannatónleikana:

Selma var hrifin af Röggu og Agli.
Ragga og Egill voru ekkert minna en stórkostleg

"Stuðmenn fá fullt hús stiga frá mér! Þvílíkir fagmenn! Lögin og stemningin framkölluðu sælutilfinningu og ljúfa nostalgíu á meðan ég dansaði í sætinu mínu af hamingju. Ragga og Egill voru ekkert minna en stórkostleg og þeirra söngur, sviðsframkoma og orka var áreynslulaus og á heimsmælikvarða! Ferfalt húrra fyrir öllum sem á sviðinu stóðu! Ég fer að sofa í sæluvímu :).Takk fyrir mig," s
krifar Selma Björnsdóttir söngkona á Facebooksíðuna sína.

Óli Palli var mjög sáttur.
Stuðmenn eru ekki bara hljómsveit

"Ég sá Stuðmenn í Eldborg á laugardagskvöld og niðurstaðan er þessi: Stuðmenn eru ekki bara hljómsveit allra landsmanna heldur líka þjóðargersemi! Þetta var frábært!!!" skrifar Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður eftir tónleikana á Facebook.

Jóhanna og Friðrik Ómar á góðri stundu þegar hún pakkaði Eurovisiona saman og landaði öðru sætinu. Friðrik sagði tónleika Stuðmanna vera þá bestu sem hann hefur séð lengi.
Geggjaðir tónleikar

Friðrik Ómar söngvari er á sama máli en hann skrifaði í athugasemdarkerfið hjá Ólafi: "Geggjaðir tónleikar. Þeir bestu sem ég hef séð lengi."


Tengdar fréttir

Ferskir og flottir á afmælinu

Niðurstaða: Stuðmenn heilluðu tónleikagesti í Hörpu með frábærri spilamennsku og góðum húmor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×