Körfubolti

Svekkjandi tap hjá Sundsvall

Hlynur og Jakob.
Hlynur og Jakob. Mynd/Valli
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons tapaði naumlega, 105-102, gegn toppliði sænsku úrvalsdeildarinnar, Borås, í kvöld. Leikurinn var jafn og æsispennandi allan tímann en taugar leikmanna Borås voru sterkari undir lokin.

Liðið komst í 103-100 en Sundsvall fékk þó tækifæri til þess að jafna en Jakob Örn Sigurðarson og Cuffee klikkuðu báðir á þriggja stiga skoti. Sundsvall setti niður tvö víti á lokasekúndum leiksins en það var of lítið og of seint. Síðustu stigin komu af vítalínunni frá leikmanni Borås.

Jakob Örn skoraði 14 stig í leiknum, tók 4 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.

Hlynur Bæringsson átti stórleik og skilaði tvöfaldri tvennu. Skoraði 10 stig og reif niður 13 fráköst ásamt því að gefa 4 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×