Leik lokið: Haukar - Grindavík 80-92 | Þægilegt hjá Grindavík í Ólafssal Siggeir Ævarsson skrifar 12. október 2024 21:14 vísir/anton Grindavík vann öruggan tólf stiga sigur á Haukum í Bónus-deild karla í körfuknattleik í kvöld. Grindavík gerði út um leikinn í fyrri hálfleik og sigur þeirra var aldrei í hættu. Haukar tóku á móti Grindavík í Ólafssal í kvöld, eflaust staðráðnir í að spila betur en í fyrsta leik tímabilsins sem tapaðist með tæpum 30 stigum. Grindvíkingar voru hins vegar bara of stór biti fyrir Hauka að kyngja í kvöld. Það var nokkuð jafnfræði með liðunum í blábyrjun, en Grindvíkingar leiddu engu að síður með átta eftir fyrsta leikhluta, 16-24. Ég veit ekki hvað Maté sagði við sína menn á milli leikhluta en það bar í það minnsta engan árangur. Gestirnir byrjuðu annan leikhluta á að skora 13 stig án svars frá Haukum og gerðu í raun nokkurn veginn út um leikinn. Haukar áttu engin svör sóknarlega en eftir að hafa sett þrjá þrista í byrjun leiks settu þeir engan í öðrum leikhluta og nýtingin komin í 18 prósent. Grindvíkingar þurftu ekki að hafa mikið fyrir hlutunum í fyrri hálfleik og leiddu mjög örugglega í hálfleik, 29-50. Haukamenn virkuðu ögn líflegri í upphafi síðari hálfleiks en fimm fyrstu körfur Grindavíkur voru þristar svo að bilið minnkaði lítið sem ekkert. Haukar náðu alls að minnka bilið um eitt stig, staðan 54-74 fyrir lokaátökin og Grindvíkingar virtust bara vera að bíða eftir því að leikurinn kláraðist á þessum tímapunkti. Fjórði leikhluti leið síðan hjá án mikilla flugeldasýninga og Grindvíkingar fóru með öruggan sigur af hólmi, lokatölur 92-80. Bónus-deild karla Haukar UMF Grindavík
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 99-79 | Meistararnir komnir á blað eftir frábæran fjórða leikhluta