Körfubolti

Jakob fór illa með Höfrungana

Jakob Örn.
Jakob Örn.
Pavel Ermolinskij varð að sætta sig við að tapa fyrir Jakobi Erni Sigurðarsyni, Hlyni Bæringssyni og öðrum fyrrum félögum sínum í Sundsvall Dragons í kvöld.

Þá komu Drekarnir í heimsókn til Norrköping og lögðu Höfrungana, 74-77, í hörkuleik.

Jakob Örn fór mikinn í leiknum. Skoraði 24 stig, tók 6 fráköst og gaf 2 stoðsendingar. Hlynur skoraði 13 stig, tók 9 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.

Pavel skoraði 7 stig fyrir Norrköping, tók 6 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.

Dragons er í öðru sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 6 stig en Dolphins hefur aðeins fengið tvö stig það sem af er móti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×