Tíska og hönnun

Glæsilegt blað hjá Þórunni Högna

Þórunn Högna Högnadóttir ritstjóri NUDE Home.
Þórunn Högna Högnadóttir ritstjóri NUDE Home.
NUDE HOME er komið út en um er að ræða nýtt tímarit um heimili, hönnun, mat og vín. Blaðið er gefið út af Origami ehf. sem er útgáfufyrirtæki NUDE magazine sem komið hefur út frá árinu 2010. Þetta fyrsta tölublað af NUDE HOME er 154 síður að stærð. Ritstjóri blaðsins er Þórunn Högnadóttir, stílisti og blaðamaður, sem er fyrrverandi ritstjóri sjónvarpsþáttarins Innlit/Útlit.

Í þessu fyrsta blaði er fjölbreytt efni þar sem áhersla er lögð á danska hönnun. Lesendur fá yfirlit yfir helstu hönnunarverslanir sem gaman er að heimsækja í Kaupmannahöfn og íslenskir arkitektar segja frá danskri hönnun sem er í uppáhaldi hjá þeim. Farið er í heimsóknir til Oliver Gustav í 18. aldar bruggverksmiðju við Kongens Nytorv og á veitingastaðinn Noma í Kaupmannahöfn sem er þekktur fyrir framúrstefnulega matargerð. Einnig er sumarhús fimm manna íslenskrar fjölskyldu skoðað, kíkt á vinnustofu ELLU í Ingólfsstræti og margt margt fleira.

Áætlað er að næsta tölublað komi út seinni partinn í nóvember.

Sjá NUDE Home hér!

Fyrsta forsíða NUDE Home
Innnlit á vinnustofu Ellu er meðal þess sem sjá má í blaðinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×