Innlent

Sérstakur starfshópur til að meta stöðu Eirar

Höskuldur Kári Schram skrifar
Björn Valur Gíslason.
Björn Valur Gíslason.
Skipaður verður sérstakur starfshópur til að leggja mat á fjárhagsstöðu Eirar og tryggja áframhaldandi þjónustu og búseturétt íbúa. Þetta var niðurstaða fundar fjárlaganefndar Alþingis með framkvæmdastjóra félagsins í morgun. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagði af sér sem stjórnarformaður Eirar í gær.

Starfshópurinn verður skipaður fulltrúum velferðarráðuneytis, sveitarfélaga og íbúa. Þá mun formaður fjárlagaganefndar, Björn Valur Gíslason, einnig eiga sæti í hópnum. Hópnum er meðal annars ætlað að leggja mat á fjárhagsstöðu Eirar og fylgjast með samningaviðræðum félagsins við kröfuhafa. Björn Valur segir að einhugur sé um það innan fjárlaganefndar að tryggja farsæla lausn fyrir íbúa.

„Þingmenn allir munu sjá til þess að þeir íbúa sem þarna búa í íbúðum, sem þeir hafa fjárfest í, að þeir munu fá að gera það áfram, það verður algerlega gulltryggt og sömuleiðis þjónusta sem eir er að veita eldri borgurum hún verða þarna til staðar. þetta er það sem við munum gera og standa vörð um. og það mun enginn finna fyrir því þar þó að fjárhagsstaðan sé slæm," segir Björn Valur.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagði af sér í gær sem stjórnarformaður Eirar en því hefur meðal annars verið haldið fram að hann hafi leynt alvarlegri fjárhagsstöðu félagsins fyrir stjórninni meðan hann var framkvæmdastjóri. Vilhjálmur hefur alfarið neitað því en í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær segir Vilhjálmur að þetta hafi verið persónuleg ákvörðun og að nú sé brýnt að byggja upp traust á ný gagnvart lánadrottnum og skjólstæðingum. Stjórn félagsins eigi að bera ábyrgð á stöðu mála og að hann telji sig vera að axla þá ábyrgð með ákvörðun sinni.

Björn Valur telur að ákvörðun Vilhjálms sé til þess fallinn að skapa vinnufrið. „Það mun allavega ekki beina sjónum að því allavega verða til þess að við öll og allir málsaðilar munu reyna að beina fókusinum að lausnum og horfa til framtíðar hvað það varðar. ég held að það sé alltaf gott þegar menn stíga til hliðar og mynda rými fyrir aðra til að vinna," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×