Innlent

Funda í dag um alvararlega fjárhagsstöðu Eirar

AÓ skrifar
Húsnæði Eirar í Grafarvogi.
Húsnæði Eirar í Grafarvogi.
Stjórn Eirar fundar í dag með íbúum um slæma fjárhagsstöðu félagsins. Íbúum hefur verið skipaður lögmaður til að gæta hagsmuna þeirra í þeim samningaviðræðum sem framundan eru.

Fréttastofan hefur undanfarna daga fjallað um slæma fjárhagsstöðu Eirar sem skuldar átta milljarða og er með neikvætt eigið fé. Björgunarteymi frá KPMG og Lex vinnur að því að semja við lánadrottna, sem eru Íbúðalánasjóður og lífeyrissjóðir.

Þriðji kröfuhafahópurinn eru svo íbúar í svokölluðum öryggisíbúðum Eirar. Íbúar sem lögðu tugmilljónir króna inn í félagið í skiptum fyrir íbúðarétti. Íbúarnir áttu að fá inneignir sínar endurgreiddar þegar þeir færu úr íbúðunum, en nú er alls óvíst með það í ljósi þess að Eir rambar nú á barmi gjaldþrots.

Alls á þetta fólk, nokkur hundruð eldri borgarar, um tvo milljarða inni hjá Eir sem það á nú hættu að glata.

Ýmislegt bendir til þess að lengi hafa legið fyrir að fjárhagsstaðan hjá Eir væri óviðunandi. Félagið tapaði um 300 milljónum, 2010 og 600 milljónum 2011. Það sama ár kom núverandi stjórnarformaður Eirar, sem þá var framkvæmdatjóri, og talaði eins og allt væri með felldu í rekstrinum.

Þetta er einkar alvarlegt í ljósi þess all nokkrir einstaklingar lögðu ævisparnaðinn sinn inn í Eir um svipað leyti og eftir að þetta viðtal var tekið. Þegar reksturinn er í raun kominn í algjört uppnám.

Það skal tekið skýrt fram að ekkert liggur fyrir enn um hvort einhverjir íbúar muni tapa peningum. Samningaviðræður við lánadrottna ganga enn út á það að allir fái sitt.

Þetta ætlar stjórn Eirar að leggja áherslu á, á fundum sem haldnir verða í dag með íbúum. Sá fyrsti byrjar nú klukkan eitt. En auk stjórnarmanna og núvreandi framkvæmdastjóra, sem er nýtekinn við taumunum þarna, verður einni lögmaður sem sérstaklega hefur verið feninn til að gæta hagsmuan íbúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×