Innlent

Bjór er ekki bara bjór

Hann veit meira um bjór en flestir en segist ekki vera neitt sérstaklega vandlátur þegar kemur að því að honum sé boðið upp á einn slíkan, svo framarlega sem það sé bjór sem hann bruggar sjálfur.

Á Baldri Kárasyni, bruggmeistara Vífilfells á Akureyri, hvílir ávallt mikil pressa hver jól enda er það á hans ábyrgð að jólabjórinn lukkist.

Baldur lærði réttu handtökin í Skotlandi og hefur bruggað bjór fyrir þjóðina í tuttugu ár.

Ásgeir Erlendsson og Gísli Berg, tökumaður, skelltu sér norður í kennslustund til Baldurs. Hægt er að sjá umfjöllunina í meðfylgjandi myndskeiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×