Tónlist

Nýtt myndband Hjaltalín komið á Vísi

Glænýtt og dulúðugt myndband Hjaltalín við lagið Lucifer/He Felt Like a Woman er tekið til sýninga hér á Vísi í dag.

Myndbandið gerði bandaríski leikstjórinn Yoonha Park. Hann er unnusti Rebekku Bryndísar Björnsdóttur, fagottleikara hljómsveitarinnar, en Rebekka framleiddi myndbandið.

Lagið Lucifer/He Felt Like a Woman er upphafslag fjórðu plötu Hjaltalín, Enter 4. Hjaltalín tilkynnti útgáfu plötunnar á þriðjudag og kom það aðdáendum í opna skjöldu enda hafði lítið spurst um plötuna út fyrir herbúðir sveitarinnar.

Enter 4 er komin í forsölu hjá Tónlist.is og á heimasíðu Hjaltalín, hjaltalinmusic.com, á morgun. Hún fer síðan í almenna dreifingu í verslanir um land allt í lok næstu viku.

Hægt er að horfa á myndbandið hér fyrir ofan og á Sjónvarpsvef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.