Innlent

Ríkið samþykkir níu milljarða lán fyrir Vaðlaheiðargöngum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Katrín Júlíusdóttir fjármála- og efnahagsráðherra.
Katrín Júlíusdóttir fjármála- og efnahagsráðherra.
Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, undirritaði á föstudaginn lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf. vegna framkvæmdar við jarðgöng undir Vaðlaheiði.

Lánið er veitt á grundvelli laga sem samþykkt voru fyrr á árinu um lánasamninginn. Upphæð lánsins er 8,7 milljarðar króna og með undirrituninni er fjármögnun verkefnisins tryggð, segir í frétt á vef ráðuneytisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×