Tíska og hönnun

Glæsileikinn allsráðandi á árinu

Stjörnurnar skinu skært á rauða dreglinum á árinu.
Stjörnurnar skinu skært á rauða dreglinum á árinu.
Flott förðun, fallegt hár, glæsilegir kjólar og kynþokkafullar stjörnur voru áberandi í Hollywood og víðar á árinu sem er að ljúka.

Hér má sjá nokkrar að þeim stórstjörnum sem þóttu skara fram úr á rauða dreglinum.

Meðal þeirra er ofurfyrirsætan Miranda Kerr sem hefur vægast sagt átt farsælt ár sem og söngkonan Rihanna og fleiri flottar.

Miranda Kerr er búin að vera ein vinsælasta fyrirsæta heims undanfarið og landað hverjum risa samningnum á fætur öðrum.

Rihanna hefur verið mikið í fréttum á árinu, bæði fyrir glæstan feril sem og brösótt einkalíf og mikið djamm. Alltaf er hún þó flott stelpan.

Jennifer Lopez er ein þeirra sem verður bara betri með aldrinum. Hæfileikarík og glæsileg með einn ungan á kantinum.

Heidi Klum slær alltaf í gegn þegar hún mætir á rauða dregilinn með útgeislun sinni og húmor.

Blake Liveley varð fræg fyrir hlutverk sitt í Gossip girl og hefur nú stimplað sig rækilega inn sem tískuíkon í Hollywood.
 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×