Rekinn út eftir stórfurðulegt rifrildi við dómara - myndband 11. desember 2012 11:30 Amir Johnson er ekki þekktasti leikmaður NBA deildarinnar í körfubolta en Toronto leikmaðurinn var í sviðsljósinu í nótt fyrir afar undarlega hegðun í tapleik gegn Portland.
Amir Johnson er ekki þekktasti leikmaður NBA deildarinnar í körfubolta en Toronto leikmaðurinn var í sviðsljósinu í nótt fyrir afar undarlega hegðun í tapleik gegn Portland. Johnson reifst þar eins og smábarn við David Jones einn þriggja dómara leiksins. Og Johnson var vísað út úr húsi fyrir þá hegðun. Johnson tók frákast undir körfunni eftir fyrra vítaskot hjá leikmanni Portland, Jones dómari, tók einnig um boltann, og þeir rifust hreinlega um „frákastið". Jones hafði enga þolinmæði í slíkt og vísaði Johnson út úr húsi. Leikmaðurinn var allt annað en ánægður og kastaði m.a. munngómi sem notaður er til að vernda tennurnar í átt að Jones. Það má gera ráð fyrir að Johnson þurfi að greiða í það minnsta 3 milljónir kr. í sekt vegna atviksins. David Stern framkvæmdastjóri NBA á örugglega eftir að hækka sektina þar sem að leikmaðurinn reyndi að kasta hlutnum í dómarann. „Þetta var barnaleg hegðun hjá okkur báðum. Við vorum báðir að rífast um boltann, og við gáfum okkur ekkert, og hegðun mín í kjölfarið var einnig barnaleg," sagði Johnson eftir leikinn sem Toronto tapaði en þetta er í fyrsta sinn á átta ára ferli hans í NBA sem hann missir stjórn á skapi sínu. Atvikið má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan.
NBA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira