Tíska og hönnun

Ber að ofan fyrir Esquire

MYNDIR / ESQUIRE
Tímaritið Esquire hefur kosið leikkonuna Milu Kunis kynþokkafyllstu konu heims. Hún prýðir forsíðu nóvemberheftis tímaritsins í sexí stellingu.

Mila fór meira að segja úr að ofan í myndatökunni en hún er ekki bara kynþokkafull heldur líka frábær leikkona. Hún segist þó ekki vera fyndin.

"Ég held að ég hafi óvart farið að leika í fyndnum myndum en ég er ekki fyndin. Ég kann bara að koma skrýtlu frá mér. Það er til fólk sem er náttúrulega fyndið og svo er til fólk sem kann að koma brandara frá sér. Það er hæfileiki sem er ræktaður. Í þau tuttugu ár sem ég hef verið í bransanum hef ég æft þetta. Ég held að um leið og þér finnist þú vera fyndinn hættir þú að vera fyndinn," segir Mila í viðtali við blaðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.