Tíska og hönnun

Bók um íslenska fatahönnun

Ljósmyndarinn og stílistinn Charlie Strand einblínir á íslenska fatahönnuði í bókinni Icelandic Fashion Design sem kemur út í vikunni. 
Mynd/magnusandersen.co
Ljósmyndarinn og stílistinn Charlie Strand einblínir á íslenska fatahönnuði í bókinni Icelandic Fashion Design sem kemur út í vikunni. Mynd/magnusandersen.co
"Það er svo mikil gróska í íslenskri fatahönnun að mér fannst við hæfi að gera heila bók og sýna heiminum hvað er í gangi hérna," segir ljósmyndarinn og stílistinn Charlie Strand sem á heiðurinn að ljósmyndabókinni Icelandic Fashion Design sem kemur út í vikunni.

Bókin inniheldur umfjallanir og vegalega myndaþætti tíu hönnuði. Charlie Strand hefur verið búsettur hér á landi síðastliðin fimm ár en hann er hálfur Íslendingur. Icelandic Fashion Project á að vera heimild um þann ört stækkandi iðnað sem fatahönnun er á Íslandi í dag og gefa um leið útlendingum sem sækja landið heim smá innsýn inn í íslenskan tískuheim.

Þeir hönnuðir sem fjallað er um í bókinni eru Steinunn, Bóas, Eygló, Royal Extreme, ELM, Munda, Vera Þórðardóttir, E-Label og Arna Sigrún.

"Mér finnst þessir tíu hönnuðir endurspegla hönnunarsenuna hérna. Hönnuðirnir eru jafn ólíkir og þeir eru margir. Þeir eru einnig allir á mismunandi stað á ferli sínum sem mér fannst mikilvægt," segir Strand, sem var rúmt ár að vinna bókina í samvinnu við hönnuðina sjálfa, teiknara og grafískan hönnuð.

Strand hefur áður gefið út bókina Icelandic Projects sem er um íslenska list, tísku og tónlist. Útgáfuhóf fyrir Icelandic Fashion Design verður næstkomandi fimmtudag í bókabúð Máls og menningar.

- áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.