Innlent

Tvöfalt fleiri kaupa á netinu

strætó Unnið er að viðbótum fyrir snjallsíma svo hægt verði að vita nákvæmlega hvenær von er á vögnum. 
fréttablaðið/pjetur
strætó Unnið er að viðbótum fyrir snjallsíma svo hægt verði að vita nákvæmlega hvenær von er á vögnum. fréttablaðið/pjetur
Tvöfalt fleiri farmiðar og strætókort voru seld á netinu í janúar en á sama tíma í fyrra.

Þá hefur heimsóknum á vef Strætó fjölgað um 45 prósent eftir að nýtt rauntímakort var þar tekið í notkun. Á rauntímakortinu er staðsetning vagna uppfærð á tíu sekúndna fresti fyrir tilstilli GPS-búnaðar í vögnunum.

Unnið er að nýrri útgáfu af leiðarvísi og viðbótum fyrir flestar gerðir snjallsíma. Þannig munu viðskiptavinir Strætó geta fylgst með ferðum vagna og séð nákvæmlega hvenær vagn er væntanlegur.

- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×